Innlent

Samningur við Rússa um orkumál

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra undirritaði samninginn fyrir hönd Íslendinga.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra undirritaði samninginn fyrir hönd Íslendinga. mynd/ anton.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Sergey Shmatko, orkuráðherra Rússlands, undirrituðu í morgun samstarfssamning milli Íslands og Rússlands um jarðhitamál.

Markmiðið með samningnum er að auka rannsókna- og vísindasamstarf ríkjanna á sviði jarðhita, samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. Einnig að efla tengsl fyrirtækja sem vinna að nýtingu jarðhita.

Á morgun mun Katrín undirrita samstarfssamning milli ríkjanna um ferðamál og í tengslum við hann munu fulltrúar nokkurra íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja kynna starfsemi sína fyrir rússneskum ferðaskrifstofum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×