Sveik rándýran páfagauk af Furðufuglum 25. janúar 2011 00:01 Pilturinn sveik út páfagauk af þeirri tegund sem sjá má á myndinni, auk búrs og matar fyrir hann. Gaukinn nefndi hann Húgó.
Nítján ára piltur hefur verið ákærður fyrir fjölmörg þjófnaðar- og fjársvikamál. Meðal annars er hann ákærður fyrir að hafa svikið út páfagauk, búr og fóður fyrir rúmlega hálfa milljón úr versluninni Furðufuglum. Gaukurinn er af sjaldgæfri tegund, svokallaður grænvængjaður arnpáfi, og með dýrari fuglum í heimi. Hann sveik pilturinn út á stolið greiðslukortanúmer í gegnum síma og nefndi hann Húgó. Pilturinn sem um ræðir stóð ýmist einn að brotunum eða í samvinnu við tvo aðra pilta sem einnig eru ákærðir í málinu. Þeir eru sextán og sautján ára gamlir. Brot piltanna voru mikið í fréttum þegar þeir fóru eins og logi yfir akur í sumarbústaðahverfum á Suðurlandi og Vesturlandi, brutust þar inn og létu greipar sópa. Allir eru piltarnir ákærðir fyrir að hafa brotist í sameiningu inn í sautján sumarbústaði í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þar stálu þeir einkum flatskjám, myndavélum, kíkjum og hljómflutningstækjum. Þá eru þeir ákærðir fyrir að stela bíl sem stóð í Grasagarðinum í Laugardal í Reykjavík. Hann notuðu þeir til að komast austur í sumarbústaðahverfið þar sem þeir brutust inn. Þá er höfuðpaurinn, sá nítján ára, ákærður fyrir að brjótast, ásamt sextán ára piltinum, inn í ellefu sumarbústaði til viðbótar, einnig í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þar stálu þeir einnig allmörgum flatskjám, svo og myndavélum, myndbandsupptökuvél og fleiri tækjum. Þeir hirtu nær einungis dýr tæki þar sem þau voru til staðar, en í einstaka tilfellum fengu aðrir munir að fylgja með, svo sem vifta og tuskuhundur. Höfupaurinn var ákærður fyrir stórfelld fjársvik, eins og að ofan greinir. Samtals sveik hann út vörur og þjónustu út á stolin greiðslukortanúmer fyrir um tvær og hálfa milljón króna. Mestu stal hann frá fyrirtækinu Nova ehf. eða samtals nær 1,2 milljóna andvirði í símainneignum. Sautján ára pilturinn er svo ákærður fyrir þjófnað úr þremur verslunum og akstur undir áhrifum fíkniefna.jss@frettabladid.is
Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Fleiri fréttir Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Lögreglan leitar enn að Ernu „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Tæplega tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Skráðum félögum í Nýju Avalon fjölgaði um 575 prósent Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut „Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Óvissa með kaffistofu Samhjálpar og listaverk Gerðar í hættu Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Sjá meira