Sjö lög verða í sviðsljósinu þegar framlag Íslands til Eurovision verður valið í næsta mánuði. Það voru miklar tilfinningar í gangi í Efstaleitinu þegar keppnin fór fram á laugardagskvöldinu en ekkja Sigurjóns, Þórunn Erna, var viðstödd þegar sex vinir hans fluttu lagið hans, Aftur heim.
Mikill samhugur ríkti meðal flytjenda og var fólk sammála um að vel hefði tekist til við flutningin á laginu en það voru þeir Hreimur Örn, Pálmi Sigurhjartarson, Matthías Matthíasson, Gunnar Ólason, Vignir Snær og Benedikt Brynleifsson sem sáu um að koma því til skila. -fgg


