Vöruþurrð um borð hjá Iceland Express 17. júní 2011 09:15 Breska flugfélagið Astreus sem flýgur fyrir Iceland Express hefur verstu tölfræði allra félaga hvað varðar seinkanir á Keflavíkurflugvelli.
Matthías Imsland Farþegar Iceland Express í júní hafa orðið varir við að úrvalið af mat og öðrum vörum um borð er fremur fátæklegt miðað við það sem vaninn hefur verið. Farþegi í nýlegu flugi Iceland Express til Barcelona segir Fréttablaðinu að á leiðinni út hafi ekki verið hægt að kaupa léttvín, sterk vín eða þá bjórtegund sem auglýst var á tilboði. Vatn hafi verið ófáanlegt á flöskum þótt það hafi verið í boði úr vatnsdunkum sem flugfreyjur hafi haft hjá sér. Þegar haldið hafi verið heim fimm dögum síðar hafi sölubæklingurinn hreinlega verið horfinn úr vélinni. Hefðbundin söluvarningur hafi ekki verið á boðstólum. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, segir skýringuna einfalda. Félagið hafi stofnað sitt eigið þjónustufyrirtæki á Keflavíkurflugvelli eftir að slitnaði upp úr samstarfi við fyrri þjónustuaðila. Koma þurfi upp lager og þjálfa þurfi upp starfsfólk og þá sem komi inn með vörur. „Fyrstu fimmtán dagana í júní höfum við þurft að taka vörur erlendis vegna þess að það var ekki komið endanlegt samþykki fyrir okkar eigin lager. Við höfum verið að pikka upp breskt gos og spænskt gos og vatn. Það hefur ekki verið neinn skortur á því þótt það séu ekki þær vörur sem við höfum auglýst. Við höfum heldur ekki verið að ota að fólki skartgripum og slíku,“ segir Matthías. Hann útskýrir að langan tíma hafi tekið að fara í gegnum leyfisferlið. „Það dróst að fá öll leyfi en þetta er loksins að gerast núna þannig að þetta ætti að vera með eðlilegum hætti frá og með morgundeginum [deginum í dag].“ Fyrirtækið sem þjónustaði Iceland Express í Keflavík þar til um síðustu mánaðamót er Airport Associates ehf. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sagði félagið upp Iceland Express-samningnum fyrir þremur og hálfum mánuði. Borið var við viðvarandi seinkunum á áætlun félagins. Þær hefðu sérstaklega keyrt um þverbak eftir að Iceland Express hefði hafið tengiflug til Ameríku fyrir rúmu ári. gar@frettabladid.is
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu