Þröngt á þingi í alþingishúsinu 17. júní 2011 20:53
Háskóli Íslands fagnaði hundrað ára afmæli sínu í dag og því var haldin hátíðarsamkoma í þinghúsinu, þar sem háskólinn starfaði einmitt fyrstu þrjá áratugina. Það var laugardaginn 17. júní árið 1911 sem langþráður draumur þjóðarinnar um íslenskan háskóla rættist loks, en þá var Háskóli Íslands stofnaður í samkomusal þinghússins. Það þótti því við hæfi að halda hátíðarsamkomu í tilefni af hundrað ára afmæli skólans á sama stað. Þar tóku til máls forseti alþingis, rektor Háskólans, menntamálaráðherra og formaður stúdentaráðs, sem öll sammældust um mikilvægi menntunar. Að samkomunni lokinni þyrptust gestir svo niður í forsal þinghússins á fyrstu hæð, en í því litla rými starfaði háskólinn einmitt fyrstu 29 starfsárin, eða til ársins 1940. Til að minnast þessa tíma í sögu háskólans var afhjúpuð veggmynd í forsalnum, auk þess sem forseti alþingis færði Háskólanum gjöf frá Alþingi, glerlistaverkið Þvottakonur, í minningu þeirra sem börðust fyrir stofnun Háskólans. Lilja Dögg Jónsdóttir, formaður Stúdentaráðs reyndi að ímynda sér hvernig það hefði verið að sækja skóla í þinghúsinu. Hún játti því að á þeim tíma hlyti að hafa verið heldur þröngt á þingi hjá nemendum. Á milli klukkan tvö og hálfsex síðdegis gat almenningur svo sett sig í sömu spor og reynt að ímynda sér fyrstu starfsár háskólans í þinghúsinu. Þá var opið hús í þinginu og gestir og gangandi gátu virt fyrir sér sýningar um bæði þingstörf Jóns Sigurðssonar og starfsemi Háskólans, en eins og sjá má nýtti fjöldi fólks sér tækifærið og leit í stutta hátíðarheimsókn.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Sjá meira