Kjarasamningar í uppnámi 18. júní 2011 12:14 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Svo gæti farið að kjarasamningar, sem náðust eftir margra mánaða viðræður, verði hleypt í uppnám í næstu viku vegna aðgerða sem ríkisstjórnin lofaði en aðilar vinnumarkaðarins telja hana ekki hafa efnt. Eftir langa samningarimmu náðust kjarasamningar á almennum vinnumarkaði núna í byrjun maí - og þeir voru síðan samþykktir af félögum með miklum meirihluta atkvæða. Samningarnir ná til tugþúsunda manna á vinnumarkaði og eru til þriggja ára. Nú gæti hins vegar babb verið komið í bátinn því óðum styttist sá frestur sem stjórnvöld hafa til að standa við sinn hluta samninganna. Forsenda þess að samningarnir gildi til þriggja ára er að stjórnvöld fari í ákveðnar aðgerðir og samþykki lagabreytingar fyrir 22. júní. Ef ekki geta ASÍ og SA ógilt samningana sem þýðir að þeir myndu renna úr gildi fyrsta febrúar á næsta ári og þá þyrfti að semja enn á ný. Meðal þess sem ríkisstjórnin lofar að gera í yfirlýsingu tengdum samningunum er að auka hagvöxt í 4-5%, efla fjárfestingar, að ríkið ráðist í fjölda verklegra framkvæmda og ýmislegt fleira. Ekki verður af orðum aðila vinnumarkaðarins í Fréttablaðinu í dag, ráðið að þeir telji stjórnvöld hafa efnt sinn þátt í samningunum. Þannig segir forseti Alþýðusambandsins að opinberar framkvæmdir ættu að vera komnar lengra á veg, hagvaxtarspár byggi á því, fari hagvöxtur ekki í gang sé hrein skelfingaratburðarrás framundan með frekari niðurskurði og skattahækkunum. Þá segir Helgi Magnússon, stjórnarmaður í framkvæmdastjórn SA, að menn hafi gengið býsna langt í launahækkunum í trausti þess að hagvöxtur ykist og að óvissu yrði eytt í sjávarútvegi. Ekkert af því sé að ganga eftir. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það tvennt sem vinnuveitendur séu ósáttir við í málinu sé: „Við höfum áhyggjur annars vegar af stórum fjárfestingunum í atvinnulífinu og hins vegar samgöngumálunum sem virðist ekki hafa verið mikill áhugi á að koma fram. Varðandi sjávarútvegsmálin þá er sú atburðarás vel þekkt og hún var ekki í neinu samræmi við það sem um var talað. En hversu líklegt telur Vilhjálmur að forsendubrestur verði? „Ég skal ekkert segja um það, en á meðan ákvörðun er ekki tekin þá getur þetta væntanlega farið á hvorn veginn sem er.“
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu