Íslenska gámafélagið og Spölur fyrirtæki ársins 7. maí 2010 17:45 Spölur rekur Hvalfjarðargöng. Spölur og Íslenska gámafélagið eru fyrirtæki ársins. Mynd/Pjetur
Íslenska gámafélagið og Spölur voru valin Fyrirtæki ársins í könnun VR en niðurstöðurnar voru kynntar í dag. Íslenska gámafélagið vann í hópi stærri fyrirtækja en Spölur í hópi minni fyrirtækja þar sem starfa 49 eða færri starfsmenn. Johan Rönning bætti sig mest á milli ára í hópi stærri fyrirtækja og fær því sæmdarheitið hástökkvari ársins. Í hópi minni fyrirtækja er það Hagvangur sem er hástökkvarinn þetta árið, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá VR. „Óvissa síðustu mánaða á vinnumarkaði og erfitt efnahagsástand setja mark sitt á niðurstöðurnar en engu að síður eru þær í flestum tilfellum jákvæðari en þær voru árið 2007 sem vekur óneitanlega athygli. Ástæðuna má e.t.v. rekja til breyttra viðhorfa og þess að starfsfólk metur stöðu sína hlutfallslega enn góða þrátt fyrir ótryggt ástand," segir í tilkynningunni. Þar segir að VR hafi staðið fyrir könnun á Fyrirtæki ársins í rúman áratug og síðustu fimm ár hafi SFR, stéttarfélag starfsmanna hins opinbera, tekið þátt. „Þetta er stærsta vinnumarkaðskönnun á Íslandi og í ár fengu ríflega 30 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði spurningaeyðublað." Markmið könnunarinnar er að skapa umræðuvettvang starfsmanna og stjórnenda um vinnustaðinn. Að mati VR veitir hún starfsmönnum tækifæri til að koma skoðunum sínum og athugasemdum á framfæri og skapar þeim grundvöll til að ræða um starfsaðstæður sínar og kjör við sína yfirmenn. Hæsta mögulega einkunn í Fyrirtæki ársins er 5,00 og fékk Íslenska gámafélagið, sigurvegari stærri fyrirtækja, 4,59 í einkunn. Meðaltal stærri fyrirtækja var 3,98 þetta árið en var 4,02 í fyrra. Í hópi minni fyrirtækja fékk Spölur 4,90 í einkunn en meðaltalið í ár var 4,10 sem er nánast það sama og í fyrra. Í könnuninni eru þátttakendur beðnir um að leggja mat á átta lykilþætti í sínu starfsumhverfi og eru þeim gefnar einkunnir á bilinu frá einn til fimm. Einkunnir lækka allar á milli ára nema í einum þætti, sveigjanleika í starfi. „Í ljósi erfiðleika á vinnumarkaði kemur það ekki á óvart að einkunnir lækki en það sem vekur athygli er að þær eru í flestum tilfellum ennþá hærri en þær voru árið 2007."
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira