Vatni borgarbúa ekki ógnað 22. apríl 2010 05:00 Breyting í vindáttum gæti farið að leggja ösku yfir á höfuðborgarsvæðið. Orkuveitan segir það ekki mundu spilla drykkjarvatni. Fréttablaðið/Pjetur
Sigurbjörn Búi, forstöðumaður fyrir kalda vatnið hjá Orkuveitu Reykjavíkur, segir ástæðulaust að óttast mengun á drykkjarvatni vegna öskufalls á starfssvæði fyrirtækisins. Að sögn Sigurbjörns er allt kalt vatn Orkuveitunnar fengið úr borholum neðanjarðar nema á Akranesi þar sem vatn er fengið úr vatnsbóli í Akrafjalli. Þar sé reyndar heldur ekki von á að mengað vatn berist til neytenda því það fari í gegnum sandsíur. Sigurbjörn útskýrir að helsta hættan af gosöskunni stafi af flúor sem geti náð niður í jarðlögin þaðan sem vatnið sé tekið. Í öskunni mun einmitt vera talsverður flúor. „En reyndar er flúor í drykkjarvatni hér eitt hundrað sinnum minni en mælt er með vegna tannheilsu,“ bendir hann á. Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun, segir hættuna á öskufalli fyrir fisk í ám og vötnum vera fyrir hendi. Hættan sé hins vegar óljós enda séu mjög margir þættir sem spili inn í hugsanleg áhrif af öskunni. Hann biður fólk að láta vita ef það sér fisk sem það telur hafa drepist af völdum öskufalls. Þekkt sé að flúor sé hættulegt skepnum. „Mér er sagt að þegar askan lá norður í land í Heklugosinu 1970 hafi fundist fljótandi dauðir fiskar í hliðarám Blöndu á Auðkúluheiði. Það voru líkur til þess að það væri vegna eiturefna úr öskunni,“ segir Guðni Guðbergsson. - gar
Mest lesið Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Erlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Innlent Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Erlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent Fleiri fréttir Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Sjá meira