Innlent

Nær öll heimili landsins með nettengingu

MYND/Getty
Tölvur eru á 93 prósent íslenskra heimila og 92 prósent heimila eru með nettengingu. Þetta kemur fram í heftinu Upplýsingatækni sem Hagstofan gefur út. Nærri 60 prósent íslenskra heimila eru með tvær eða fleiri tölvur og 54% eru með flatskjá.

Í heftinu segir að tölvu- og netnotkun sé mjög almenn hér á landi, en 96 prósent landsmanna á aldrinum 16-74 ára höfðu notað tölvu síðustu þrjá mánuði fyrir rannsóknina og 95 prósent höfðu tengst netinu. „Athygli vekur að tæplega fjórðungur netnotenda tengdist neti utan heimilis með farsíma um 3G kerfi, sem er mikil aukning frá árinu 2009," segir í frétt á vef Hagstofunnar.

„Nær allir netnotendur, eða 94%, lásu vefútgáfur dagblaða og tímarita, 83% notuðu heimabanka og 70% höfðu notað samskiptasíður á borð við Facebook og Twitter."

Þá segir að nærri helmingur landsmanna á aldrinum 16-74 ára hafi verslað á netinu þegar miðað var við ár fram að rannsókn. „Algengast var að fólk keypti miða á viðburði í gegnum netið, en verslun á farmiðum, gistingu og annarri ferðatengdri þjónustu hefur dregist saman frá fyrra ári."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×