Innlent

Mislingum og rauðum hundum verði útrýmt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Haraldur Briem situr fundinn fyrir Íslands hönd. Mynd/ Hari.
Haraldur Briem situr fundinn fyrir Íslands hönd. Mynd/ Hari.
Til stendur að útrýma mislingum og rauðum hundum í Evrópu í síðasta lagi árið 2015, samkvæmt áætlunum sem ræddar voru á svæðisfundi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu þessa dagana.

Meðal annarra mikilvægra mála sem eru til umfjöllunar eru framtíðarsýn á þróun heilbrigðismála í Evrópu og gerð heilbrigðisáætlunar til ársins 2020, heilbrigðismál í utanríkisstefnu, þróunarsamvinnu og samstarfi aðildarríkjanna, samspil umhverfis og heilsu í framhaldi af fundi í Parma á Ítalíu fyrr á þessu ári, fjármál og fjármögnun WHO til framtíðar og útrýming lömunarveiki í Evrópu en nýlega hafa greinst nokkur hundruð tilfelli í Tajikistan og nágrannalöndum.

Samkvæmt frétt á vef stjórnarráðsins sitja Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins, Ingimar Einarsson skrifstofustjóri og Haraldur Briem sóttvarnalæknir svæðisfund Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fyrir hönd Íslands. Haraldur er jafnframt einn af stjórnendum fundarins.

Rauðir hundar og mislingar eru veirusjúkdómar. Vel hefur tekist að halda þeim í skefjum hér á landi undanfarin ár með bólusetningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×