Sigruðu í alþjóðlegri kórakeppni í Rússlandi 10. ágúst 2010 13:01 Flensborgarkórinn vann fyrstu verðlaun í alþjóðlegri kórakeppni í Sankti Pétursborg í síðustu viku.
Flensborgarkórinn, kór útskrifaðra nemenda frá Flensborgarskólanum, keppti í alþjóðlegri kórakeppni í Sankti Pétursborg í Rússlandi sem lauk fyrir helgi. Kórnum var boðin þátttaka og keppti í flokki blandaðra kóra sem var stærsti flokkurinn og vann fyrstu verðlaun í þeim flokki. Magnús Þorkelsson, skólastjóri Flensborgarskólans, segir í tilkynningu mikla viðurkenningu fólgna í þessum árangri. Flensborgarkórinn var stofnaður haustið 2008 og telur nú 30 söngvara á aldrinum 20-30 ára. Kórinn er sjálfstæð eining leidd útfrá Kór Flensborgarskólans í Hafnarfirði sem er einn stærsti ungmennakór landsins og hefur starfað í fjölda ára, að sögn Magnúsar. Hrafnhildur Blomsterberg er stjórnandi beggja kóranna. Keppnin, The VI International Competition of Choral Arts -The Singing World-, er alþjóðleg keppni og var 37 kórum boðin þátttaka að þessu sinni. Að keppninni stendur listasamsteypan INTER ASPECT í samvinnu við menningarmálanefnd Sankti Pétursborgar og elsta kór Rússlands „The State Academic Capella". „Keppnin var mjög sterk og dæmd af sjö manna alþjóðlegri dómnefnd. Það er því mikil viðurkenning fólgin í þessum árangri. Ásamt því að taka þátt í keppninni hélt kórinn nokkra mjög vel sótta tónleika í glæsilegum tónleikasölum Sankti Pétursborgar sem skipulagðir og auglýstir voru af stjórnendum keppninnar," segir Magnús.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Erlent Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Erlent Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Sjá meira