Lögreglan sendi kanadískri fjölskyldu þýfi 11. ágúst 2010 09:40 Mynd/Pjetur
Kanadísk hjón og dóttir þeirra urðu fyrir óskemmtilegri reynslu þegar þau heimsóttu Ísland fyrr í sumar. Brotist var inn í bíl þeirra þegar þau skoðuðu sig um í Reykjavík og úr honum var stolið ýmsum búnaði, meðal annars bakpokum þeirra og GPS-tæki. Fram kemur á vef lögreglunnar að með hjálp heiðvirðra borgara hafi lögreglumönnum tekist að endurheimta mest af búnaði þeirra og koma honum aftur í réttar hendur áður en Íslandsheimsókninni lauk. GPS-tækið var þar undanskilið en nú hefur líka tekist að koma því til skila en tækið var á dögunum sent til eigenda sinna í Kanada. Það fannst nokkru síðar við húsleit hjá manni sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í framhaldinu var GPS-tækinu komið í munavörslu embættisins en þar mundi starfsmaður eftir innbrotinu í bíl Kanadamannanna og áttaði sig á því að um sama tæki var að ræða. Hann setti sig í samband við fólkið í Kanada og nú hefur GPS-tækið komist aftur í réttar hendur eins og áður sagði. Að sögn lögreglu var kanadíska fjölskyldan afar ánægð með vinnubrögð lögreglunnar sem vonar að næsta heimsókn fjölskyldunnar til Íslands verði áfallalaus.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ Sjá meira