Hagnaður ÁTVR þrefaldast 11. ágúst 2010 06:45 Verslanir átvr skiluðu tæpum milljarði af hagnaði til ríkissjóðs fyrir árið 2009. mynd/anton
Hagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) í fyrra nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Árið 2008 var hagnaðurinn 447 milljónir króna. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri ÁTVR, segir þennan aukna hagnað skýrast af breyttum lögum um álagningu á áfengi og tóbaki sem samþykkt voru í árslok 2008. „ÁTVR greiddi 960 milljónir til ríkissjóðs eftir síðasta ár og við munum greiða milljarð í ár,“ segir Sigrún. Eggert Ísdal, sölustjóri áfengis hjá umboðsfyrirtækinu Rolf Johansen & Company, segir tekjuaukningu ÁTVR eingöngu tilkomna vegna aukinnar álagningar. „Skattahækkanir hafa ekkert með þetta að gera,“ segir Eggert. Áfengisgjöld og skattar séu til staðar þegar ÁTVR kaupi inn, svo öll umframálagning sé í þeirra höndum. Álagning, eftir skatta og gjöld, á sterku áfengi hafi hækkaði um 73 prósent í byrjun árs 2009 og um 38 prósent á léttvíni og bjór. Örn Stefánsson, innkaupastjóri ÁTVR, segir þennan stóraukna hagnað koma til af tvennu. Annars vegar af því að álagning á áfengi í kjarnasölu og reynslusölu hafi verið samræmd og hins vegar vegna hækkunar á áfengisgjöldum. „Áfengisgjöld hækkuðu mjög mikið á stuttum tíma,“ segir Örn. „Álagningin hjá ÁTVR hækkaði þó mest á sterku áfengi en þar er sala minnst.“ Friðjón Hólmbertsson, framkvæmdastjóri drykkjarvörusviðs Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, segir hækkunina hafa mikil áhrif á viðskipti í landinu. „ÁTVR er að leggja þetta ofan á hækkun áfengisgjalds,“ segir Friðjón. „Verslanirnar sjálfar eru að taka mun meiri hagnað til sín, vegna þess að álagningin er umfram öll gjöld og skatta.“ Áfengisverð hefur hækkað um 57 prósent að meðaltali frá byrjun árs 2008. Verð hefur þó lækkað örlítið frá því það var hæst í janúar 2010. Verð á tóbaki hefur þróast í svipuðum skrefum og áfengið, hefur hækkað um 49 prósent frá byrjun árs 2008. -sv
Mest lesið Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira