Geysissvæðið olnbogabarn í kerfinu 11. ágúst 2010 11:49
Landsspilda ríkisins á Geysissvæðinu í Haukadal, virðist vera einskonar olnbogabarn, því engin ríkisstofnun eða ráðuneyti telja svæðið á sínu forræði og þar með ber engin ábyrgð á ástandi þess. Umræða um öryggismál á svæðinu hefur vaknað eftir að tveggja ára spænsk stúlka brenndist alvarlega í fyrradag þegar hún féll framfyrir sig ofan í afrennsli frá hvernum Strokki. Strangt til tekið eiga allar jarðir í eigu ríkisins að vera á forræði landbúnaðarráðuneytisins, en Geysissvæðið er það ekki. Upp úr miðri síðustu öld var til svonefnd Geysisnefnd, með aðkomu menntamálaráðuneytisins, en nefndin er ekki lengur til. Svæðið er heldur ekki á forræði umhverfisráðuneytis, né umhverfisstofnunar og fréttastofunni tókst ekki fyrir fréttir að grafa upp nefnd, sem embættismenn segja að sé hugsanlega enn til, og eigi að fjalla um málefni Geysissvæðisins. Að minnstakosti kannast embættismenn ekki við að neitt hafi komið frá henni. Eins og við greindum frá í hádegisfréttum í gær, hefur sveitarfélagið Bláskógabyggð haft frumkvæði að því að reyna að koma einhverju skikki á málefni Geysissvæðisins, í samvinnu við Umhverfisstofnun, en þó án þes að svæðið sé á forræði stofnunarinnar og engir fjármunir séu tiltækir til framkvæmda. Meðal hugmynda sem nú eru ræddar eru að stækka svæðið, friðlýsa það og bæta og treysta aðgengi að því, en á þessu stigi virðist þetta þó aðeins vera óskalisti.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira