Lífið

Þolir ekki miðaldra menn sem klæða sig eins og unglingar

Hugh Grant. MYND/Cover Media
Hugh Grant. MYND/Cover Media

Breski leikaranum Hugh Grant, 49 ára, þykir hræðilegt að horfa upp á jafnaldra sína klæða sig eins og unglinga.

Hugh er þekktur fyrir einfaldan látlausan smekk þegar kemur að klæðaburði en hann hefur vakið athygli fyrir að gana í póló skyrtum og kasmír peysum undanfarin ár.

„Ég er ekki frá því að fólk um og yfir þrítugt reyni stöðugt að klæða sig eins og unga fólkið. Þú gengur um borgir eins og New York eða London og það eina sem þú sérð er fullorðið fólk sem klæðir sig eins og unglingar. Mér finnst það hræðilegt," sagði hann.

Hann segir að konur hafi gríðarleg áhrif á hvernig mennirnir þeirra klæða sig en Hugh hefur átt í ástarsambandi við margar smekklegar konur. Má þar nefna Elizabeth Hurley og Jemima Khan.

„Ég held að hver einasti karlmaður hlusti á það sem konur segja um fötin sem þeir ganga í.  Ef kona segir við karlmann: Þú lítur rosalega vel út í þessum gallabuxum, þá mun viðkomandi ganga í þeim næstu tuttugu árin."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.