„Við erum á varðbergi þessa dagana“ 15. ágúst 2010 12:11 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hætta er talin á að eðjuflóð gætu komið ofan úr Eyjafjallajökli í dag en mikilli úrkomu er spáð á Suðurlandi. Lögregla er með aukin viðbúnað undir Eyjafjöllum og Veðurstofa Íslands fylgist náið með ástandi mála. „Við erum á varðbergi þessa dagana," segir jarðfræðingur hjá Veðurstofunni. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er gert ráð fyrir mikilli úrkomu á Suðurlandi í dag og mun úrkomubelti fara yfir Eyjafjallajökul. Mikil aska er á jöklinum og samfara úrkomu eykst hætta á eðjuflóðum vatns og ösku í ánum sem renna frá jöklinum. „Það sem höfum verið að óttast er að þetta mun að einhverju leyti fara á hreyfingu og það myndi skila sér niður í árnar og þar af leiðandi myndi einskonar eðjuflóð fara af stað en það fer í rauninni algjörlega eftir úrkomunni," segir Jón Kristinn Helgason, jarðfræðingur hjá veðurstofunni. Hann bendir á að um mikið úrkomusvæði sé að ræða. Eyjafjallajökull og hlíðar hans eru á skilgreindu hættusvæði og er umferð um jökulinn og hlíðar hans bönnuð. Sérstaklega er varað við umferð um gilin. Vegfarendur um Suðurlandsveg og um veginn inn í Þórsmörk eru beðnir um að sýna aðgát. Lögreglan mun auka viðbúnað og Veðurstofan fylgist náið með ástandi mála. Síðastliðinn föstudag var haldinn fundur í almannavarnanefnd á Hvolsvelli ásamt fulltrúum Veðurstofu Íslands og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Þar var sérstaklega rætt um aukna hættu vegna eðjuflóða og viðbrögð vegna þeirra.
Tengdar fréttir Varað við hættu á eðjuflóðum frá Eyjafjallajökli Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir mikilli úrkomu á Suðurlandi í dag og mun úrkomubelti fara yfir Eyjafjallajökul. Mikil aska er á Eyjafjallajökli og samfara úrkomu eykst hætta á eðjuflóðum vatns og ösku í ánum er renna frá jöklinum, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. 15. ágúst 2010 10:21 Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira
Varað við hættu á eðjuflóðum frá Eyjafjallajökli Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir mikilli úrkomu á Suðurlandi í dag og mun úrkomubelti fara yfir Eyjafjallajökul. Mikil aska er á Eyjafjallajökli og samfara úrkomu eykst hætta á eðjuflóðum vatns og ösku í ánum er renna frá jöklinum, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. 15. ágúst 2010 10:21