Innlent

Reynir að bæta samskipti Íslendinga og Taílendinga

Íslendingar og Taílendingar geta skapað ótrúlega mörg tækifæri með því að sameina krafta sína. Þetta segir ung kona sem starfar við skúringar hér á landi, en nýtir allar frístundir og laun í að reyna bæta samskipti milli þjóðanna sem hún telur alltof lítil.

Fyrr á þessu ári stofnaði Wasana María, félagasamtökin Siam Samakon sem hafa það að marmiði að bæta samskipti milli fólks af mismunandi þjóðernum.

Hún segir marga Taílendinga atvinnulausa um þessar mundir hér á landi, það sé öllum fyrir bestu að virka krafta þeirra og koma þeim aftur út á vinnumarkaðinn.

Hún nefnir sem dæmi að það með því að blanda saman hugviti tveggja þjóða sé hægt að auka verðmæti ýmis hráefnis. Til að mynda mætti nýta tælenskt silki í bland við íslenska hönnun sem og íslenskar sjávarafurðir til að útbúa vörur sem eru eftirsóttar í Asíu.

„Ég reyni að bæta ástandið og laga það, hjálpa unga fólkinu að fá vinnu. Það er ekki gott að það hangi bara saman. Það er margt sem hægt er að gera," segir Wasana María.

Hingað til hefur hún aðeins unnið að þessum verkefnum í sjálfboðastarfi, en hún vinnur fyrir sér með þrifum. Reyndar leggur hún ekki aðeins til vinnuna því hún hefur einnig staðið straum að prentun og gerð bæklinga og fræðsluefnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×