Innlent

Stöðvaður fyrir að sveifla fiðlu

Maðurinn sagðist ekki hafa spilað á fiðluna heldur sveiflaði hann henni.
Maðurinn sagðist ekki hafa spilað á fiðluna heldur sveiflaði hann henni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði karlmann á þjóðvegi í nágrenni höfuðborgarinnar eftir að tilkynning barst þeim um að hann hefði spilað á fiðlu á meðan hann ók bifreið sinni.

Lögreglan hafði upp á manninum og stöðvaði hann. Maðurinn neitaði að hafa spilað á fiðluna á meðan hann ók bílnum. Hann sagðist bara hafa sveiflað henni með annarri hendi. Hin höndin hefði hinsvegar alltaf verið á stýrinu.

Maðurinn fékk að halda för sinni áfram með fiðluna en ökutækið var gert upptækt þar sem það reyndist ótryggt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×