Fjármögnun nýs Landspítala kallar á útboð innan EES 14. júlí 2010 06:00
Fjármögnun byggingar nýs Landspítala er hluti af alútboði sem fara þarf fram á Evrópska efnahagssvæðinu vegna verkefnisins. Nýtt opinbert hlutafélag tók við umsjón með byggingu sjúkrahússins um síðustu mánaðamót. Í upphafi vikunnar hófust viðræður milli félagsins og SPITAL-hópsins sem var sigurvegari samkeppni um hönnun sjúkrahúsbyggingarinnar. Stefnt er að því að niðurstaða fáist í þær viðræður í byrjun ágúst, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Um tuttugu íslenskir lífeyrissjóðir gáfu í fyrra sameiginlega viljayfirlýsingu um þátttöku í fjármögnun spítalabyggingarinnar. Þrátt fyrir það liggur ekki formlega fyrir hvort af þátttöku þeirra verður og hvernig henni verður þá háttað. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, sem hefur umsjón með aðkomu lífeyrissjóðanna að málinu, segir að vegna EES-reglna hafi alltaf legið fyrir að bjóða þyrfti út fjármögnunina vegna EES-reglna. Fyrst að því loknu skýrist hvernig aðkomu lífeyrissjóðanna verður háttað. Ekki sé útilokað að verktaki vilji sjálfur annast fjármögnun á framkvæmdatíma. Lífeyrissjóðirnir hafa hins vegar þegar skuldbundið sig til að taka þátt í fjármögnun um þriggja milljarða króna kostnaðar við hönnun og undirbúningsframkvæmdir. Einnig hafa þeir mikinn áhuga á þátttöku í langtímafjármögnun, þ.e.a.s. 40 ára leigu ríkissjóðs á fullbúnu sjúkrahúsinu að loknum framkvæmdum. Þorbjörn segir að ef undirbúningur verksins gangi vel megi reikna með því að undirbúningi ljúki og útboð heildarframkvæmda geti farið fram um mitt næsta ár. Framkvæmdir geti þá hafist seinni hluta næsta árs.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Þúsundir hælisleitenda synt til Ceuta á nokkrum klukkustundum Erlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Sjá meira