Innlent

Segir sök klínt á Þorstein Kragh

Andri Ólafsson skrifar

Hollenskur maður, sem var dæmdur í fangelsi hér á landi fyrir fíkniefnainnflutning, fullyrðir í bréfi sem hann sendi nýverið frá sér að Þorsteinn Kragh sé fórnarlamb glæpagengis og sitji saklaus í fangelsi.

,,Ótrúverðugt", segir lögreglan.

Þorsteinn Kragh var í fyrra dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að skipuleggja smygl á tæplega 200 kílóum af fíkniefnum til landsins. Þetta er með þyngstu dómum sem kvaddir hafa verið upp í fíkniefnamálum.

Samkvæmt dómnum fékk Þorsteinn burðardýr til verksins. Hollenskan mann að nafni Jacob Van Hinte sem fékk sjö og hálft ár fyrir sinn þátt í smyglinu.

Hinte þessi hefur verið á Litla-Hrauni síðan dómur féll en var fluttur til Hollands nýlega. Áður en hann fór sendi hann frá sér bréf sem rataði meðal annars til fréttamanns.

Í bréfinu, sem ritað er á ensku, lýsir Hinte því yfir að Þorsteinn Kragh tengist smyglinu ekki á nokkurn hátt. Hann sé blóraböggull hinna raunverulegu skipuleggjanda smyglsins sem sé glæpagengi í Hollandi.

Hinte segir ástæðuna fyrir því að hann segi frá þessu núna sé sú að hann sé orðinn heilsuveill, eigi skammt eftir ólifað, og vilji skilja við guð og menn með hreina samvisku.

Hann biður Þorstein Kragh um að fyrirgefa sér að hafa bendlað hann við málið en segir að líf sitt hefði annars verið í hættu.

Það er skemmt frá því að segja allir þeir sem fréttastofa leitaði til í dag, hjá lögreglu eða fangelsismálayfirvöldum, sögðu bréf Hinte afar ótrúverðugt. Þá er talið er ólíklegt að hann hafi skrifað það sjálfur enda ekki sleipur í ensku.

Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, tók í sama streng. Hann vildi annars lítið tjá sig um málið, að öðru leyti en að hann hafði sjálfur séð umrætt bréf en það sé þess eðlis að ekki sá á því mark takandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×