Innlent

Hörð keppni um tjaldstæði

Gestir Þjóðhátíðar hlaupa og merkja sér tjaldstæði
fréttablaðið/óskar p. friðriksson
Gestir Þjóðhátíðar hlaupa og merkja sér tjaldstæði fréttablaðið/óskar p. friðriksson
Gestir Þjóðhátíðarinnar árlegu í Vestmannaeyjum eru margir hverjir mættir á svæðið og byrjaðir að koma sér fyrir. Heimamenn merktu fyrir tjöldum sínum í gærdag, en sá siður hefur lengi ríkt í dalnum.

„Þetta hefur alltaf verið hálfgert kaos,“ segir Óskar P. Friðriksson, umsjónarmaður munavörslunnar. „Þeir sem starfa við hátíðina fá fyrstir tækifæri til að velja sér stæði. Það eru bara allir bæjarbúar starfsmenn Þjóðhátíðar, þannig að í ár tjölduðum við öll saman.“ - sv



Fleiri fréttir

Sjá meira


×