Ritalinneyslan líkist faraldri Karen Kjartansdóttir skrifar 7. ágúst 2010 18:30
Landlæknir segir að verið sé leita leiða til að draga úr mikilli misnotkun fullorðinna á lyfinu rítalíni. Yfirlæknir á Vogi líkir þróuninni við faraldur og segir lækna hafa ávísað lyfinu í óhófi. Heilbrigðisráðherra vill taka á málinu hið fyrsta. Ritalín er eitt eftirsóttasta vímuefnið á hinum ólöglega markaði. Þetta er fyrirsögnin á nýjum pistli Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis SÁÁ, á síðu samtakanna. Þórarinn segir að tölur frá Sjúkrahúsinu Vogi og könnun á örvandi vímuefnaneyslu sjúklinganna sem hafa leitað sér meðferðar á þessu ári sýni svo ekki verður um villst að ávísun lækna á lyfið ritalín verði að endurskoða. Þórarinn segir að á árunum 1995 til 2000 hafi faraldur ólöglegrar amfetamínneyslu vaxið gríðarlega. Á sama tímabili hafi verið svokölluð létt hömlun á ávísun lækna á amfetamín og skyld efni og sölutölur hafi þá rokið upp. Eftir bankahrun hefur dregið úr framboði á ólöglegum vímefnum en rítalínneysla aukist enn og unnið upp þá minnkun sem varð á ólöglegu amfetamíni. Til að skoða þessar breytingar betur var hrundið af stað viðamikilli upplýsingasöfnun og í ljós kom að af þeim fyrstu sex hundruð einstaklingum sem komu á Vog á þessu ári voru 429 sem notuðu örvandi vímefni og 109 sprautuðu efnunum í æð. Um 60 prósent þeirra sem sprautuðu sig með örvandi efnum sögðu ritalín vera það efni sem þeir noti mest eða næstmest. Fólkið segist sprauta sig 10 til 20 sinnum á dag og nota tugi taflna daglega. Magnið er því mjög mikið. Þegar fréttastofa ræddi við Geir Gunnlaugsson, landlækni í dag sagði hann að embættið væri með málið til skoðunnar. Stefnt væri að því að koma með tillögur til úrbóta á næstu vikum. Hann tekur í sama streng og Þórarinn um að nauðsynlegt sé að fara yfir ávísanir lækna með því markmiði að koma í veg fyrir misnotkun. Þá segir Þórarinn hafa fengið þau svör frá heilbrigðisráðherra að taka eigi á þessum málum sem allra fyrst.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira