Innlent

Afþakkar laun eftir uppsögn

Runólfur Ágústsson
Runólfur Ágústsson
Runólfur Ágústsson afþakkaði laun á uppsagnarfresti í bréfi til félagsmálaráðuneytisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Runólfur sendi frá sér í gær.

Í yfirlýsingunni sagðist hann jafnframt hafa skilað inn til ráðuneytisins umbeðnum gögnum um fjármál sín og félaga tengdum honum.

Fréttablaðið óskaði eftir því við félagsmálaráðuneytið í gær að fá gögnin afhent og fékk það svar að málið yrði skoðað og að haft yrði samband síðar um daginn. Ekkert heyrðist hins vegar meira frá ráðuneytinu í gær. - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×