Aurskriða undir Eyjafjöllum: „Auðvitað bregður manni“ 7. ágúst 2010 12:59 Bærinn Steinar 4, hér sést lækjarfarvegurinn og skriðan sem nær niður á túnið. Mynd/Heiða Björg „
Við sáum þetta bara beint út um gluggann hjá okkur þegar við komum á fætur í morgun," segir Heiða Björg Scheving húsfreyja á bænum Krossafell. Aurskriða féll undir Eyjafjöllum í morgun. Heiða varð vör við skriðuna snemma í morgun og lét húsfreyjuna á bænum Steinar 4 vita, en sá bær er aðeins ofar í hlíðinni. Mikil rigning hefur verið á svæðinu undanfarna daga og er Skógarfoss til að mynda töluvert grár vegna öskunnar. Skriðan kom úr Steinafjalli og hefur Svaðbælisá runnið yfir þjóðveginn vestan við brúnna. „Við sáum bara að litli lækurinn okkar, sem rennur hérna rétt hjá okkur, var orðinn að stórfljóti í nótt. Þetta fór út um allt túnið og er töluvert mikið miðað við hvað lækurinn er lítill," segir Heiða. Aðspurð hvernig drulla þetta sé segir hún að það sé mikið af stórum steinum í þessu sem og aur.Mikið af stórum steinum og aur komu í skriðunniMynd/Heiða BjörgVar henni brugðið í morgun þegar hún leit upp í hlíðina? „Auðvitað bregður manni að sjá þegar það er komið skarð í hlíðina og allt í drullu fyrir neðan. Maður er búinn að búast við þessu út af öskufallinu, en ég veit ekkert hvort þetta sé út af því en það er ekkert ólíklegt. Við erum samt ekkert hrædd vði þetta," segir Heiða. Díana Ágústsdóttir húsfreyja á bænum Steinar 4 segir að Heiða hafi látið sig vita og hafi þá litið út um gluggann og séð skriðuna. „Þetta er örugglega bara svona hundrað metrum frá húsinu okkar og nær alveg niður á veg, innkeyrslan er full af aur," segir Díana sem er þó öllu vön. „Maður er ýmsu vanur, svo maður lætur þetta ekkert á sig fá," segir hún og tekur fram að engin hætta hafi skapast þar sem tunga liggur yfir ofan bæinn sem verji húsið.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira