Innlent

Dómarar verði hugrakkir og dæmi framámenn í fangelsi

Dómarar verða að hafa hugrekki til að dæma framámenn í íslensku samfélagi í fangelsi fyrir lögbrot, segir William Black, lögfræðingur og fyrrverandi fjármálaeftirlitsmaður í Bandaríkjunum. Dómstólar þurfi að geta horft fram hjá fínu jakkafötunum og átta sig á því að bankamenn geta líka framið glæpi.

Fullt var út úr dyrum á fyrirlestri William Black, lögfræðings og sérfræðings í efnahagsbrotum í Háskóla Íslands í dag. Black segir að bankarnir hafi eyðilagt íslenska hagkerfið.

„Íslensku bankarnir, samkvæmt rannsóknarskýrslu Alþingis, að minnsta kosti þeim köflum sem ég hef getað lesið á ensku, eru kennslubókardæmi um það sem við köllum bókhaldssvik," segir Black og bætir við að ábyrgð endurskoðenda sé mikil og rannsaka þurfi þeirra þátt sérstaklega.

„Þessir bankar störfuðu allan tímann á algerlega stjórnlausan hátt. Það sem þeir gerðu hlaut augljóslega að valda hruni bankanna og endurskoðendum ber skylda til að vera sjálfstæðir gagnvart bankastjórunum og vera fagmannlegir og segja sannleikann án tillits til efnahagslegra aðstæðna þar sem þeir geta grætt á því að leggja blessun sína yfir fáránleg reikningsskil," segir Black.

Black hefur átt fundi með forstjóra Fjármálaeftirlitsins og sérstökum saksóknara. Hann segir að það verði að sækja stjórnendur föllnu bankanna til saka.

„Það er undir íslensku dómstólunum komið að sýna hvort þeir eru tilbúnir

að setja háttsett fólk, að mörgu leyti háttsettasta fólk Íslands, í fangelsi," segir Black.

„Ég held að reynt verði að láta fólk svara til saka en spurningin er hvort íslenskir dómarar vilja sjá menn í fínum jakkafötum sem menn sem geta verið glæpamenn og eiga skilið að vera í fangelsi," segir Black aðspurður hvort hann telji að réttlætinu verði framfylgt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×