Titlar sig fyrirsætu vegna sjónvarpsmannsins Egils 23. janúar 2010 05:00 módelið og sjónvarpsmaðurinn Egill Kári Helgason titlar sig sem módel í símaskránni til að komast hjá ónæði í tengslum við nafna sinn. Sjónvarpsmaðurinn segist hafa mikla samúð með nafna sínum. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir augljós líkindi eru Egill Kári og Egill Óskar ekkert skyldir. „
Það var alltaf verið að angra mig. Eftir hrunið þá var hringt í mig nánast tíu sinnum á dag. Fólk var að leita að Agli Helgasyni, alveg kolgeggjað,“ segir Egill Kári Helgason, nafni sjónvarpsmannsins þekkta og sonar hans Kára. Vegna áreitisins þurfti Egill Kári að setja starfsheitið módel aftan við nafnið sitt í símaskránni til að fæla æstan almúgann frá. „Ég hringdi í símaskrána og bað um að titla mig eitthvað sem tengdist Agli Helgasyni ekki neitt. Mér datt þetta nú í hug sjálfur en þær aðstoðuðu mig með þetta.“ Að sögn Egils Kára var áreitið sem hann varð fyrir af ýmsum toga. „Það var ein kelling sem ætlaði að taka kallinn í gegn af því að hann hafði skrifað um pabba hennar á einhverju bloggi. Svo var bara allur andskotinn. Eftir að ég var búinn að útskýra að ég væri ekki Egill Helgason sjónvarpsmaður spurði fólk hvort ég vissi hvert númerið hans væri og hvort ég þekkti konuna hans, nefndu það bara. „Það er ótrúlegt hvað fólk var duglegt að spjalla við mann eftir á.“ Þrátt fyrir fyrirsætutitilinn segist Egill Kári, sem starfar hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Ísfelli, aldrei hafa fengið boð um að sitja fyrir. „Ég er eiginlega búinn að vera að bíða eftir því. Það er greinilega kreppa hjá módelum á Íslandi,“ segir hann og hlær. En hvað finnst honum um nafna sinn á RÚV? „Hann er bara fínasti kall og stendur sig ágætlega, held ég bara, við að fjalla um allt þetta rugl sem er í gangi.“ Sjónvarpsmaðurinn Egill skilur vel það sem Egill Kári hefur gengið í gegnum og finnst ekkert undarlegt að hann skuli hafa breytt starfsheiti sínu. „Hann á alla mína samúð að vera tengdur við þennan mann sem allir vilja vera að kvabba eitthvað í og skamma. Síðan heitir sonur minn Kári þannig að kannski hefur þetta eitthvað grautast til hjá fólki. En þetta eru falleg nöfn bæði tvö,“ segir Egill og bætir við: „Ég heiti reyndar Egill Óskar Helgason, það er hið mikla leyndarmál. En ég nota það ekki lengur. Þegar ég var yngri og aðeins tilgerðarlegri og var í menntaskóla þá kallaði ég mig Egil Ó. Helgason. Nú heiti ég bara Egill Helgason en í þjóðskrá er ég Egill Óskar Helgason.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira