Innlent

Perlan farin til Landeyjahafnar

Mynd: Stefán Karlsson

Dýpkunarskipið Perlan lagði nú fyrir hádegi af stað til Landeyjahafnar og hefur vinnu við dýpkun innsiglingarinnar um leið og það kemur á staðinn, eða um miðnætti í kvöld. Gera má ráð fyrir að þessi lota taki nokkurn tíma en ölduhæð ræður mestu þar um. Veður við suðurströndina hefur verið rysjótt eins og jafnan á haust og vetrarmánuðum en Perlan verður til taks svo lengi sem þörf krefur.

Siglingastofnun, Vegagerðin og Eimskip hafa sent frá sér sameiginlega tilkynningu þar sem kemur fram að frá upphafi hafi verið gert ráð fyrir því að fyrsta vetur Landeyjahafnar þyrfti töluverðar dýpkunarframkvæmdir í höfninni. „Almennt ríkjandi suðvestanáttir munu þó eiga stærstan þátt í að fjarlægja gosefnið frá höfninni á haf út.

Í vetur verður Landeyjahöfn áfram aðalhöfn Herjólfs og áætlun miðast við siglingar þangað. Ef þær aðstæður skapast að dýpi verður ekki nægjanlegt mun skipið sigla í Þorlákshöfn en með ölduspám og tíðum dýptarmælingum mun gefast að minnsta kosti tveggja sólarhringa ráðrúm til breytinga á áætlun," segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×