Innlent

Vinnuslys: Brenndist illa á KFC

Ungur starfsmaður á kjúklingastaðnum KFC í Kópavogi liggur á gjörgæsludeild eftir að heitavatnskútur sprakk þar skömmu eftir lokun í gærkvöldi og hann brenndist í andliti, á brjósti og höndum. Hann verður líklega úrskrifaður á aðra deild í dag, að sögn læknis.

Athygli vekur að að eftir slysið var hvorki kallað á sjúkrabíl né lögreglu tilkynnt um slysið. Þá var Vinnueftirlitinu ekki kunnugt um það laust upp úr klukkan níu í morgun, en það á líka að fá tilkynningar um vinnuslys.

Eftir því sem Fréttastofan kemst næst, brenndist annar starfsmaður, en mun minna, og munu þeir hafa farið saman á einkabíl á Slysadeild og sá minna brenndi ekið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×