Gætu fengið 120 milljarða 10. september 2010 05:00 Formaður skilanefndar Kaupþings situr í stjórn danska bankans FIH. Skilanefndin hefur sett bankann í söluferli.Fréttablaðið/GVA
Sjö lífeyrissjóðir og breskur einkaframtakssjóður hafa lagt fram tilboð í danska fyrirtækja- og fjárfestingarbankann FIH. Danska dagblaðið Börsen sagði í gær verðmiðann á FIH liggja á milli fjögurra til sex milljarða danskra króna. Það jafngildir allt að 120 milljörðum króna. KB banki keypti FIH fyrir 7,1 milljarð danskra króna, jafnvirði 84 milljarða króna á þávirði, í júní árið 2004. Hann er nú í eigu skilanefndar Kaupþings. Frá því að skilanefndin tók reksturinn yfir eftir fall Kaupþings hefur hún breytt skipulagi bankans og lagt niður óarðbærar deildir. Hagnaður FIH nam 102,8 milljónum danskra króna, jafnvirði tveggja milljarða króna, á öðrum ársfjórðungi. Til samanburðar nam hann aðeins tæpum sex milljónum á sama tíma í fyrra. Auknar þóknanatekjur og lægri afskriftir skýra betri afkomu. Seðlabanki Íslands tók veð í FIH gegn veitingu 500 milljóna evra neyðarláns til Kaupþings haustið 2008. Það stendur nú í 75 milljörðum króna. Í stjórn FIH sitja Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, og Haukur Benediktsson, formaður Eignasafns Seðlabanka Íslands. Skilanefnd Kaupþings vildi ekki tjá sig um málið í gær. - jab
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur í verkefni út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira