Svikahnappur kemur upp um 39 svindlara 10. september 2010 06:45 Lögreglu ber skylda til að aðstoða Tryggingastofnun og Þjóðskrá í málum sem þessum, segir Stefán. fréttablaðið/gva
Upp hefur komist um 39 svindlara á síðustu tveimur mánuðum fyrir tilstilli tilkynningahnapps um bótasvik á heimasíðu Tryggingastofnunar (TR). Hnappnum var komið fyrir á síðunni fyrir ári síðan en frá 1. júlí í ár hafa 63 ábendingar um bótasvik borist. Af þeim reyndust 39 mál réttmæt og voru send til frekari skoðunar eða aðgerða. Ásta Arnardóttir, deildarstjóri kynningarmála hjá TR, segir flestar ábendingar varða sambúð fólks sem ekki er skráð. Ferli stofnunarinnar gangi þá svo fyrir sig að þegar rökstuddur grunur liggur fyrir um brot á lögheimilislögum er haft samband við þjóðskrá sem lætur kanna málið frekar og krefur einstaklinga skýringa. Skúli Guðmundsson, skrifstofustjóri þjóðskrár, segir að ekki sé hægt að skylda fólk til að skrá sig í sambúð, þó svo tveir einstaklingar búi saman. En njóti einstaklingar bóta sem þeim ber ekki réttur til og hafi ekki veitt þjóðskrá fullnægjandi skýringar, er lögreglu falið að rannsaka málið. Lögregla hefur þegar farið í heimsóknir til þess að staðreyna búsetu fólks eftir ábendingar sem bárust í gegnum hnappinn. Í flestum tilvikum hefur grunurinn verið á rökum reistur og lögheimili viðkomandi er þá leiðrétt. Bótagreiðslur eru þá einnig leiðréttar í kjölfarið. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglunni bera skylda til að aðstoða Þjóðskrá og TR þegar óskað er eftir því. Í tilvikum sem þessum mætir lögregla á staðinn þar sem fólkið býr og ræðir við það. Upplýsingum er svo komið til þjóðskrár. Hins vegar ef um grunsemdir um bótasvik er að ræða er málið rannsakað sem sakamál. „Þetta eru tvö aðskilin atriði. Annars vegar aðstoð við Tryggingastofnun og þjóðskrá til að staðfesta hvort viðkomandi búi á tilteknum stað eða ekki. Það er ekki rannsakað sem sakamál,“ segir Stefán. „Hins vegar þegar um er að ræða grunsemdir um bótasvik, þá fer málið í hefðbundinn farveg sem rannsókn á sakamáli hjá lögreglu.“ Þeir aðilar sem hafa ranglega sagt til um búsetu sína hjá þjóðskrá eru ekki sektaðir, sé málið ekki rannsakað sem sakamál hjá lögreglu. - sv
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur í verkefni út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira