Ölvun á bæjarhátíðum en ólæti lítil SB skrifar 25. júlí 2010 12:03 Gleði og gaman úti á landi.
Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur á hátíðinni Á góðri stundu á Grundarfirði þar sem yfir 2000 manns voru samankomnir. Að sögn lögreglu fór hátíðin vel fram og skein sólin blítt hátíðargesti á laugardaginn. Þegar rætt er við lögregluna víðsvegar um landið þar sem bæjarhátíðir fóru fram er nánast sama sagan allsstaðar. Ölvun var mikil en ólæti lítil. Á Borgarfirði Eystri mættu um 2500 manns á tónlistarhátíðina Bræðsluna og segir lögregla að þrátt fyrir að íbúatala bæjarins hafi nánast tuttugufaldast hafi engar kærur eða tilkynningar komið á borð lögreglunnar. Í nótt hafi þó þurft að aðstoða suma til að finna tjöldin sín - þó nóttin sé enn björt getur bakkus byrgt fólki sýn. Á Mærudögum í Húsavík mættu um 6000 manns og bar mikið á ölvun, að sögn lögreglunnar. Enginn var þó tekinn fyrir ölvunarakstur og segir lögreglan að hátíðin hafi gengið vel fyrir sig. Í dag má svo búast við miklum umferðarþunga þegar borgarbúar flykkjast til síns heima. Lögreglan vill hvetja fólk til að blása og athuga vínandamagn í blóði áður en lagt er af stað heim á leið og verður boðið upp á þá þjónustu á öllum bæjarhátíðunum úti á landi. Í Reykjavík var engin bæjarhátíð, ekki opinberlega að minnsta kosti. en engu að síður bar mikið á ölvun í miðbænum. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu, báðar á hverfisgötunni eftir klukkan fjögur í nótt.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Fleiri fréttir „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Sjá meira