Lífið

Clooney í pólitíkina

George Clooney er hlaðinn verkefnum en næsta mynd hans í leikstjórastólnum verður að öllum líkindum Farragut North.
George Clooney er hlaðinn verkefnum en næsta mynd hans í leikstjórastólnum verður að öllum líkindum Farragut North.

Bandaríska stórstjarnan George Clooney er orðaður við ótal verkefni þessa dagana í Hollywood. Samkvæmt vef Empire-kvikmyndatímaritsins þykir líklegast að næsta kvikmynd hans verði Farragut North. Clooney hyggst ekki leika í myndinni heldur leikstýra en Farragut North yrði byggð á samnefndu leikriti Beu Willimons sem sett var upp á Broadway 2007 við góðar undirtektir gagnrýnenda.

Orðrómurinn um áhuga Clooney á verkinu fór fyrst af stað um það leyti sem leikverkið var frumsýnt. Þá var talað um stjörnumprýdda kvikmynd með Leonardo DiCaprio í aðahlutverkinu. En svo dó sú kjaftasaga út. Verkið er nokkuð pólitískt (eitt af hugðarefnum Clooney) og fjallar um forsetaframbjóðanda sem ákveður að fara í rógsherferð gegn þingmanni úr sínu kjördæmi.

DiCaprio er víst út úr myndinni en Star Trek-leikarinn Chris Pine hefur verið orðaður við það. Og það er kannski ekkert skrýtið; Pine lék hlutverkið á Broadway. Þá hefur Philip Seymour Hoffman verið nefndur sem hinn ólánssami þingmaður. Paul Giamatti hefur einnig verið nefndur til sögunnar auk Marisu Tomei og Evan Rachel Wood. Hljómar nokkuð skothelt frá draumasmiðju George Clooney.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.