Magnús verður Íþróttaálfur 12. febrúar 2010 05:00 Íþróttaálfs-búningurinn lagður til hliðar Magnús Scheving hyggst troða upp sem Íþróttaálfurinn í síðasta sinn opinberlega í Laugardalshöllinni. Fréttablaðið/Gva
Magnús Scheving hyggst leika Íþróttaálfinn í Laugardalshöll á hátíð tileinkaðri Latabæ sem haldin verður laugardaginn 27. mars, hugsanlega í síðasta sinn. Síðast lék Magnús þennan síhoppandi karakter í Þjóðleikhúsinu fyrir ellefu árum en hefur reyndar af og til brugðið sér í bláhvíta búninginn í þágu góðs málefnis. „Ég er í alveg ágætis formi en verð samt að taka mig aðeins í gegn. Ég hef vanið mig á að taka armbeygjur og annað slíkt áður en ég fer í flug og þegar ég kem úr flugi þannig að líkaminn er í góðu standi,“ segir Magnús sem er 46 ára gamall. Magnús viðurkennir að hann hafi átt erfitt með svefn í nótt eftir að hafa tekið þessa ákvörðun. „Maður verður að taka á því á þessum sýningum, maður má ekki svíkja börnin og vera með eitthvert hálfkák.“ Annars hefur Magnús verið óvenju heppinn með meiðsl á sínum langa ferli en upplýsir þó að hann hafi tognað eitt sinn þegar ljósmyndari frá bresku blaði bar kennsl á hann á lestarstöð og vildi endilega fá að smella mynd af honum í hinu fræga spígatt-stökki. „Hann náði þessu aldrei almennilega og ég þurfti að hoppa þrjátíu sinnum og endaði á því að togna heldur illa. Ég hef alltaf verið frá í nokkra daga þegar ég hef tekið þetta stökk síðan þá en maður verður bara láta sig hafa þetta og taka það.“- fgg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira