Lífið

Átti að setja Björgvin á róandi lyf - myndband

Snemma kom í ljós að Björgvin Páll Gustavsson landsliðsmaður í handbolta var afar fyrirferðarmikið barn. Eins og móðir hans lýsir í nærmynd sem Ísland í dag gerði um kappann.

„Þegar hann var níu ára komu upp allskonar vandamál í skóla og á skóladagheimili sem hann var á og eins bara í hverfinu... og það var ákveðið að senda hann í greiningu."

Björgvin dvaldi á barna- og unglingageðdeild í sex vikur en fékk að fara heim um helgar. Hann var talinn á mörkum þess að vera ofvirkur og mælst var til þess að hann yrð settur á róandi lyf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.