Líkt og menn hafi borað niður á kókaínæð 11. september 2010 13:10 Andri Snær Magnason, rithöfundur. Mynd/Stefán Karlsson „
Geðveikin er núna augljós í jarðvarmabransanum. Þar hafði þróunin verið jöfn og stöðug frá hitaveituvæðingunni á kreppuárunum. Nú er engu líkara en menn hafi borað niður á kókaínæð og fyllt rækilega á sér nasirnar," segir rithöfundurinn Andri Snær Magnason í grein í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að það sé einsdæmi í veröldinni að þjóð drekki fyrirtækjum sínum í skuldir til þess að tvöfalda orkuframleiðsluna og tvöfalda hana aftur með tilheyrandi braski. „Að tvöfalda orkuframleiðslu í þróuðu ríki á fimm árum er ekki aðeins fáheyrt heldur væri það talið fáránlegt rugl í öllum nágrannalöndum okkar. Í flestum iðnríkjum eykst orkuframleiðsla um einhver 2-3% á ári," segir Andri og bætir við vöföldun væri óhugsandi þar margsannað væri að of stórar fjárfestingar eyðileggji meira en þær skapa. „Á Íslandi var hins vegar markmiðið að tvöfalda orkuframleiðsluna aftur næstu fimm árin með álbræðslum í Helguvík, Húsavík og reyndar gott betur með þreföldun í Straumsvík." Andri segir að það hafi verið geðveiki að tífalda bankakerfið hér á landi á sjö árum. Tæknilega ómögulegt sé að rækta upp alla þá þekkingu og reynslu sem þurfi til að byggja upp og reka slíkt kerfi á svo skömmum tíma. „Jafnvel ekki með því að moka heilli kynslóð gegnum bisnessskóla og bjarga þeim sem fæddust fyrir 1980 með skemmri skírn á MBA-námskeiði. Það er bara ekki hægt. Þótt strákur sem er enn þá með fósturfituna í hárinu fái tvær milljónir á mánuði þá verður hann ekki reynslumeiri, klárari eða ábyrgari fyrir vikið. Miklu líklegra að hann verði klikkaður. Það kom líka í ljós," segir Andri í greininni sem hægt er að lesa hér.
Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira