Það er reynsla í famelíunni 28. maí 2010 08:30 Leikstjórinn Halldór Halldórsson, Snorri Helgason, höfundur tónlistar, og Bergur Ebbi Benediktsson leikskáld í Norðurpólnum. Leikritið Klæði verður frumsýnt þar um helgina.Fréttablaðið/GVA
Dóri DNA leikstýrir nýju leikverki Bergs Ebba Benediktssonar sem frumsýnt verður um helgina. Hann segist vera stressaður fyrir þessa frumraun sína en er sannfærður um að snilldarverk sé í fæðingu. „Ég verð eiginlega aldrei stressaður. Ég er meira að segja oft kallaður Ísmolinn. En nú verð ég að viðurkenna að ég er stressaður," segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA. Dóri er leikstjóri og höfundur leikgerðar í leikverkinu Klæði sem frumsýnt verður í nýja leikhúsinu Norðurpólnum úti á Seltjarnarnesi á sunnudaginn. Verkið er eftir Berg Ebba Benediktsson og það er Sprengjuhallarmaðurinn Snorri Helgason sem semur tónlistina. Leikarar í sýningunni eru Hjörtur Jóhann Jónsson, Ólafur Ásgeirsson, Sara Margrét Nordahl og Snorri Engilbertsson. Dóri segir að leikritið hafi upphaflega verið einstaklingsverkefni sem hann vann að í námi sínu í Fræði og framkvæmd í Listaháskóla Íslands. Hann og Bergur Ebbi hafi svo ákveðið að vinna betur með leikritið. „Við höfum allir gert ýmislegt, ég, Bergur og Snorri, en þetta er alveg nýtt fyrir okkur öllum. Við erum samt bara kokhraustir enda getur maður ekki alltaf verið að vaða í grunnu lauginni. Þetta er líka kjörið tækifæri til að setja upp í þessu nýja leikhúsi." Aðspurður segir Dóri að leikritið fjalli um tvo menn sem báðir eru að gera hosur sínar grænar fyrir sömu konunni. Þeir beita mismunandi aðferðum enda hefur hvert þeirra þriggja mismunandi sýn á lífið. „Þetta er lítil sýning sem tekur á mjög stórum málefnum," segir leikstjórinn. „Þarna eru margar álitlegar spurningar um ástina. Sýningin er hlý en með kómískum undirtón, eins og allt sem við gerum því við getum ekki tekið okkur alvarlega." Móðir Halldórs er Guðný Halldórsdóttir kvikmyndaleikstjóri. Hann er því barnabarn nóbelskáldsins Halldórs Laxness. Dóri er spurður hvort fjölskyldan sé eitthvað með í ráðum. „Ég hef auðvitað leitað til fólksins í kringum mig og hef fengið mömmu og frændur mína til að aðstoða mig. Það er reynsla í fjölskyldunni." Klæði verður sýnt sex sinnum á þremur dögum og svo verður sýningum bætt við ef vel gengur. Allar upplýsingar má finna hér á Miði.is. Dóri segir að fólk sem láti sjá sig verði ekki svikið. „Þetta er gott verk. Ég er sannfærður um að ég hafi það næmi sem þarf til að gera þetta. Og svo erum við með frábæra leikara og frábæran hóp. Það er á svona stundum sem snilldin verður til." hdm@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sjá meira