Óráð, ónáttúra og einúlfar 17. desember 2010 00:01 Gullfiskar spila stórt hlutverk í sýningu Ólafar. Fréttablaðið/GVA
Galleríið Kaolin er nýtt gallerí sem opnað verður í Ingólfsstræti 8 í kvöld með tveimur nýjum sýningum. Þórður Grímsson skoðar drauma og draumfarir og Ólöf Björg Björnsdóttir veltir fyrir sér ferðalagi sjálfsnándarinnar. „Ég var búin að búa til verk í huganum fyrir rýmið sem nú er Kaolin, fyrir mörgum árum þegar það hýsti Gallerí i8. Það verk var afskaplega litað af þeim tíma og allt öðruvísi en það sem ég endaði á að gera nú, en tilfinningin er sú sama nú og þá er ég gekk inn í rýmið," segir Ólöf Björg Björnsdóttir sem er annar þeirra listamanna sem opnar sýningu í Kaolin í kvöld. Ólöf skilgreinir sýningu sína sem innsetningu, en sýningin er sköpuð sérstaklega með sýningarrýmið í huga. Ólöf segir að rétt eins og við litumst af umhverfi okkar, litast verkin hennar af sínu umhverfi. „Það eru engir sólóistar og það á líka við um list og listamenn þó þeir nálgist hlutina oft frá öðum sjónarhornum en aðrir. Við erum í senn einangruð í okkur sjálfum en tengjumst samt sem áður öllu í veröldinni. Þetta er það sem ég er að vinna með og nota til að hleypa upp verkum mínum. Við erum oft svo lituð af öllum þeim óskráðu reglum sem samfélagið og við sjálf setjum okkur, reglum sem verða að stjórnarskrá sem blindar sýn okkar á möguleika vaxtarsprota okkar og þar með vaxtar veraldarinnar sem við lifum í."Draumar og draumfarirÞórður Grímsson Óráð er önnur einkasýning Þórðar en fyrsta sýningin þar sem hann fæst við blekteikningar og prent. fréttablaðið/GVA„Óráð" er fyrsta sýning Þórðar Grímssonar á blekteikningum og prentum, en hann hefur áður fengist við vídeólist og gerð tónlistarmyndbanda fyrir hljómsveitir eins og The Brian Jonestown Massacre, Singapore Sling, The Virgin Tongues og The Go-Go Darkness. Í verkum sínum fæst Þórður gjarnan við drauma og draumfarir og mörk þess raunverulega og óraunverulega. „Þessi sýning er framhald af því sem ég hef verið að gera, bara í öðrum miðli," segir Þórður. „Minningar, tákn, svipbrigði, tími, tilfinningar, náttúra, ónáttura og það sem Freud kallaði „Das Unheimliche" eru viðfangsefni mín, en verk Edgars Allans Poe hafa haft mikil áhrif á mig, sem og myndlist Alfreðs Flóka og rit Thomasar De Quincey."Ástæður þess að Þórður flutti sig yfir í prentið er tvíþætt. „Ég hef verið í grafíkvinnslu undanfarið og hannaði meðal annars útlit nýju plötunnar með Third Sound sem var að koma út. Svo áskotnuðust mér fallegar arkir sem eru 60-70 ára, vel lifaðar, á góðum prís. Þetta tvennt tengdist svo symbolismanum sem ég hef verið að vinna með, en hann er sóttur að stórum hluta til fornrar táknfræði dauðabóka Egypta og Tíbeta, draumfara Carlos Castenada og galdraskræðu Skugga, og niðurstaðan varð þessi sýning." Opnun Nándarnálgunar einúlfa fer fram milli 18 og 20 í kvöld en Þórður opnar Óráð klukkan 20. tryggvi@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira