Læknar fái leyfi til að auglýsa 23. júlí 2010 06:00
Læknar, tannlæknar og annað heilbrigðisstarfsfólk munu geta auglýst þjónustu sína verði frumvarp heilbrigðisráðherra til nýrra laga um heilbrigðisstarfsfólk að lögum. Samkvæmt gildandi læknalögum, sem felld verða úr gildi ef hið nýja frumvarp verður samþykkt, er læknum einungis heimilt að auglýsa starfsemi sína „með efnislegum og látlausum auglýsingum þegar hann hefur störf eða breyting verður á aðsetri eða viðtalstíma", sem Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, líkir við dánarauglýsingar. Það sama á við um tannlækna. „Hér er um að ræða mun þrengri heimildir til auglýsinga á starfsemi heilbrigðisstarfsmanna en annars staðar tíðkast," segir í greinargerð með frumvarpinu. „Lagt er til að heimila almenna kynningu og auglýsingar á starfsemi, enda sé gætt málefnalegra sjónarmiða, fyllstu ábyrgðar, nákvæmni og sanngirni." Ákvæðið sé byggt á norskum lögum og að ráðherra verði heimilt að kveða frekar á um takmarkanir við auglýsingunum í reglugerðum. Birna segir að slík breyting yrði jákvæð þrátt fyrir að félagið sé almennt alfarið á móti upptöku heildstæðra laga um heilbrigðisstarfsmenn og aflagningu læknalaga. „Í þessu upplýsingasamfélagi sem við lifum í dag og með þessa fjölbreytni sem er þá finnst okkur eðlilegt að fólk geti notað fleiri miðla en bara þrjár jarðarfarartilkynningar í blöðunum um starfsemi sína." segir hún. Það eigi að gilda jafnt í einkarekstri og opinberum stofnunum, sem einnig ættu að geta veitt fólki nánari upplýsingar um starfsmenn sína. Birna bendir þó á að ómögulegt sé að segja til um hvaða hömlur ráðherra myndi síðan setja í reglugerðum. Í siðareglum lækna er þegar fjallað um auglýsingar. Samkvæmt þeim má læknir ekki „gefa fyrirheit um undralækningar né heldur gefa í skyn, að honum séu kunn lyf eða lækningaaðferðir, sem ekki séu á vitorði lækna almennt". Hann má heldur ekki „vekja á sér ótilhlýðilega athygli eða gefa í skyn yfirburði sína yfir aðra lækna", né nota titil sinn til að auglýsa lyf. - sh
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Goddur jarðsunginn Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira