Samstarf um bætta öryggismenningu í fiskiskipum 18. maí 2010 13:08 Á myndinni handsala Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, og Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, samkomulagið í morgun að viðstöddum nemendum á slysvarnanámskeiði í skólanum. Mynd: Hreinn Magnússon
VÍS og Slysavarnaskóli sjómanna hafa skrifað undir þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér formlegt samstarf um bætta öryggismenningu um borð í fiskiskipum og um auknar forvarnir gegn slysum meðal sjómanna. Liður í samstarfinu er að VÍS mun afhenda Slysavarnaskóla sjómanna 10 flotgalla árlega næstu þrjú árin til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Í tilkynningu frá VÍS segir ennfremur að tekið verði upp samstarf við útgerðir sem tryggja hjá VÍS með það að markmiði að sporna við slysum meðal sjómanna á fiskiskipum þeirra. „Markmið verkefnisins er að efla öryggismenningu um borð í fiskiskipum og gera störf sjómanna þannig öruggari en þau eru í dag. Þetta verður m.a. gert með sameiginlegri skuldbindingu útgerða og sjómanna um að stuðla að breyttu viðhorfi og aukinni áherslu á öryggismál sjómanna. Gert verður áhættumat um borð í skipunum auk þess sem tekin verður upp skipuleg skráning á slysum og öllum atvikum þar sem legið hefur nærri slysum," segir einnig. VÍS segir að til mikils sé að vinna í þessum efnum. „Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar sjóslysa árið 2009 var á því ári tilkynnt um 238 slys á sjómönnum til Tryggingastofnunar ríkisins, þar af voru tvö banaslys. Einungis 57 þessara slysa voru tilkynnt til rannsóknarnefndar sjóslysa. Að meðaltali hefur verið tilkynnt um 340 slys á sjómönnum á ári til Tryggingastofnunar síðustu 10 ár. Eitt af mikilvægum markmiðum samstarfs VÍS og Slysavarnaskóla sjómanna er að efla skráningu og tilkynningar slysa um borð í fiskiskipum, enda er það forsenda úrbóta og fyrirbyggjandi aðgerða. "
Mest lesið Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Erlent Er Trump að gefast upp á Pútín? Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Innlent Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Innlent „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Innlent 109 látnir og yfir 160 saknað Erlent „Kannski var þetta prakkarastrik“ Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Rúmlega 200 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Sjá meira