Innlent

Ráðherra fundar vegna eldgossins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Bjarnason ætlar að funda á Selfossi í kvöld vegna gossins.
Jón Bjarnason ætlar að funda á Selfossi í kvöld vegna gossins.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun í kvöld funda á Selfossi með hluta samráðhóps ráðuneytisins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Á fundinn mæta auk ráðherra, aðstoðarmanns hans og ráðuneytisstjóra, yfirdýralæknir, framkvæmdstjóri Búnaðarsambands Suðurlands, landgræslustjóri og sveitarstjóri Rangárþings-eystra.

Farið verður yfir stöðu mála eins og hún er metin núna og síðan ræddar mögulegar aðgerðir sem til framkvæmda geta komið á næstunni og snerta landbúnað á þeim svæðum sem orðið hafa verst úti.

Í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir að eftir því sem að eldgosið og tilheyrandi öskufall dregst á langinn er mögulegt að grípa þurfi til mun umfangsmeiri aðgerða vegna landbúnaðar á svæðinu en áður var talið. Sérstaklega þarf að skoða stöðu sauðfjábænda þar sem að sauðburði er víða að ljúka en allt fé enn á húsi sem ekki getur gengið til lengdar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×