Vakti mikla lukku í Kaupmannahöfn 23. ágúst 2010 05:00 Sonja Bent er ánægð með þær góðu undirtektir sem hönnun hennar fékk á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Henni var í kjölfarið boðin þátttaka á tískuvikuna í París og í Berlin. fréttablaðið/stefán „
Þetta gekk rosalega vel. Ég á í viðræðum við verslanir í Tokyo, París, London, Kaupmannahöfn, Kanada og nokkrar vefverslanir að auki þannig að móttökurnar hafa bara verið mjög góðar,“ segir fatahönnuðurinn Sonja Bent sem er nýkomin heim frá Danmörku eftir að hafa tekið þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Sonja fékk í kjölfarið boð á tískuvikuna í Berlín og Pret a porter í París auk þess sem fjölmiðlar sýndu hönnun hennar mikinn áhuga. „Ég er búin að staðfesta þátttöku mína á tískuvikuna í París en er enn að velta fyrir mér boðinu til Berlín. Í París tek ég þátt í sölusýningu sem er sérstaklega ætluð ungum fatahönnuðum og er meira eins og listræn innsetning heldur en eiginleg sölusýning. Í staðinn fyrir að hengja hönnun okkar á gínur og herðatré gerum við innsetningu, sem er mjög spennandi,“ útskýrir Sonja. Aðspurð segist hún ánægð með þá athylgi sem hönnun hennar hlaut á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. „Ég er mjög ánægð með þessar góðu undirtektir enda virkar þetta mjög hvetjandi á mann og ég tek þessu sem hrósi. Það skemmir heldur ekki fyrir að ég var á frábærum stað á sölusýningunni í Kaupmannahöfn, alveg við hliðin á barnum,“ segir hún og hlær. Sonja á einnig í viðræðum við framleiðendur úti í heimi um að framleiða hönnun hennar, en hingað til hefur hún að mestu séð um allan saumaskap. Auk þess er hún að undirbúa sig fyrir tískusýningu sem fram fer í Makedóníu þann þriðja september. „Maður er á fullu alla daga,“ segir hönnuðurinn að lokum. -sm
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Kokkakonur „kjafta, skála og knúsa“ í nýjum samtökum Matur Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið Fleiri fréttir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjá meira