Innlent

Lög um hópmálsóknir samþykkt

Nýju lögin kunna að létta álagi af dómstólum landsins.Fréttablaðið / gva
Nýju lögin kunna að létta álagi af dómstólum landsins.Fréttablaðið / gva
Alþingi Alþingi samþykkti í gær lög um hópmálsóknir og tóku þau þegar gildi. Allir viðstaddir þingmenn greiddu frumvarpinu atkvæði sitt.

Í frumvarpinu er þeim sem telja sig eiga sams konar dómkröfur á hendur sama aðila af sama tilefni heimilað að stofna svokallað málsóknarfélag utan um málareksturinn, þannig að hver og einn þurfi ekki að reka sjálfstætt mál með tilheyrandi óhagræði fyrir alla sem hlut eiga að máli, bæði málsaðila og dómstóla.

Hugmyndir hafa lengi verið uppi um að heimila með lögum hópmálsóknir á Íslandi. Þar til nýlega var hins vegar jafnan horfið frá því vegna þess að ekki var við norrænar fyrirmyndir að styðjast. Árið 2003 voru lög af þessu tagi hins vegar innleidd í Svíþjóð og árið 2008 í Danmörku, Finnlandi og Noregi.

Að því er segir í greinargerð með frumvarpinu er lögunum ætlað að greiða fyrir aðgangi að dómstólum. Úrræðið er einkum fyrir þau tilvik þegar fjöldi manna telur sig eiga fjárkröfur af sama tilefni en krafa hvers og eins er svo lág að það myndi ekki svara kostnaði fyrir hvern og einn að höfða sérstakt dómsmál. - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×