Frestun á gagnaveri „helvítis“ áfall fyrir byggingageirann 6. janúar 2010 13:22 Gagnaver í Reykjanesbæ. „
Þetta er helvítis áfall fyrir byggingageirann," segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, en allar framkvæmdir hafa verið stöðvaðar við gagnver Verner Holdings. Stjórnarformaður félagsins, Vilhjálmur Þorsteinsson, segir ástæðuna fyrir töfunum vera bið eftir því að Alþingi afgreiði fjárfestingasamning sem þar liggur fyrir. Það var í gær sem iðnaðarmenn höfðu samband við Kristján og tilkynntu honum að þeir hefðu fengið skilaboð um að hætta framkvæmdum við gagnaverið. Með fylgdi að framkvæmdir væru settar á bið um óákveðin tíma. Tugir starfa komu beint að framkvæmdunum og því gríðarlega mikilvægt verkefni að mati Kristjáns fyrir iðnaðarmenn á Reykjanesinu. Það kom hinsvegar babb í bátinn í desember þegar fjárfestingasamningurinn var fyrst lagður fyrir þing. Þá kom í ljós að Björgólfur Thor Björgólfsson átti 40 prósent í félaginu. Þingmaður Hreyfingarinnar, Birgitta Jónsdóttir, setti strax spurningar um það hvort það væri réttlætanlegt að hann fengi þetta verkefni á meðan Icesave væri í uppnámi. Iðnaðarráðherrann svaraði fullum hálsi og sagði í desember um málið: „Mér þykir ógeðfellt hvernig þingmenn hér eru að reyna að gera þetta mál tortryggilegt," sagði Katrín Júlíusdóttir við það tækifæri. Þegar Vísir hafði samband við Vilhjálm, stjórnarformann félagsins, fengust þau svör að töfin útskýrðist eingöngu vegna frumvarpsins sem liggur enn fyrir á þingi. Það er komið í gegnum fyrstu umræðu og bíður frekari afgreiðslu. Ekki náðist í iðnaðarráðherra vegna málsins.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Þurftu að réttlæta allt sem þær gerðu í Konukoti Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Sjá meira