Tábrotnaði við að ganga frá skattaskýrslunni sinni 17. apríl 2010 08:00 Rúmlega fimm tíma ferð Sigtryggur Baldursson tábrotnaði við gerð skattaskýrslunnar sinnar á þriðjudaginn og þurfti að eyða þremur tímum í einangrun á spítalanum.Fréttablaðið/Pjetur „
Ég hef alltaf sagt að bókhald er hættuleg starfsgrein og það sannaðist rækilega á þriðjudaginn," segir Sigtryggur Baldursson, trommari með meiru. Hann brotnaði á miðtá hægri fótar við gerð skattaskýrslunnar sinnar. „Ég sat inni á skrifstofunni minni og ætlaði að teygja mig í einhver gögn á hillu fyrir ofan mig," segir Sigtryggur. „Ég rakst í kollinn sem ég sat á og sparkaði honum undan mér án þess að uppgötva það sjálfur. Þegar ég ætla síðan að setjast aftur þá er auðvitað enginn kollur og ég dett beint á rassinn með þeim afleiðingum að ég sparka af alefli undir skrifborðið með hægri fætinum," útskýrir Sigtryggur en við það kubbaðist miðtáin á fætinum í sundur. Þegar Sigtryggur mætti á slysavarðstofuna í Fossvoginum tók ekki betra við. Hann var spurður hefðbundinna spurninga um heilsufar sitt og hvort hann hefði legið inni á sjúkrahúsi síðustu sex mánuði. „Því miður þá hafði ég látið fjarlæga góðkynja æxli af annarri hendinni þegar ég var í tónleikaferð með Emilíönu Torrini. Ég ruglaðist hins vegar á mánuðum og sagði aðgerðina hafa verið framkvæmda í nóvember þegar hún var í raun og veru gerð í október." Þessi litli ruglingur þýddi að Sigtryggur þurfti að dúsa í þrjá tíma í einangrun. „Og þegar táin var loks mynduð hafði sjúkrastofan verið útbúin sérstaklega og þegar þetta var allt saman búið var mér sagt að fara rakleiðis út, ekki stoppa eða borga heldur láta mig hverfa," segir Sigtryggur sem vill þó taka skýrt fram að hann er starfsfólki slysavarðstofunnar ákaflega þakklátur fyrir þá umönnun sem hann fékk. freyrgigja@frettabladid.is
Menning Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Fleiri fréttir Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Sjá meira