Velur á milli Quincy Jones og Stallone 23. júní 2010 17:15 Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen er staddur á kvikmyndahátíðinni Los Angeles Film Festival þar sem hann gekk eftir rauða dreglinum.
Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen er staddur í Los Angeles um þessar mundir þar sem hann er á meðal gesta kvikmyndahátíðarinnar Los Angeles Film Festival. Kvikmyndahátíðin fer fram í miðborg Los Angeles og er þetta í sextánda sinn sem hún er haldin. Á hátíðinni er sýndur mikill fjöldi óháðra kvikmynda, stuttmynda auk tónlistarmyndbanda og verður myndband Davíðs við lagið Supertime sýnt á hátíðinni. „Ég er staddur hérna ásamt þeim Helga Jóhannssyni, leikstjóra myndbandsins, og Hrafni Garðarssyni og hér er mikið stuð. Kanarnir elska okkur alveg hreint og við fengum meðal annars að ganga rauða dregilinn sem var mjög skemmtileg upplifun, ég hef aldrei fengið jafn mörg flass á mig á jafn stuttum tíma,“ segir söngvarinn kampakátur. Hátíðin stendur frá 17. júní og fram til 27. júní og mun Davíð og föruneyti hans dvelja í borg englanna allan þann tíma. „Akkúrat núna er ég að reyna að gera upp við mig hvort ég eigi að eyða kvöldinu með Sylvester Stallone eða Quincy Jones. Leikarinn Ben Affleck er líka með fyrirlestur sem ég er að hugsa um að kíkja á og hér er líka opinn bar sem er stórhættulegt fyrir poppstjörnu eins og mig.“ Davíð mun ekki sitja auðum höndum þegar heim til Íslands er komið því hann mun meðal annars leika fyrir dansi á Írskum dögum á Akranesi. - sm
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira