Innlent

Minnast látinna fóstra

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árleg minningarathöfn vegna fósturmissis verður haldin í Bænhúsi við Fossvogskirkju á miðvikudaginn klukkan fjögur. Þessi minningarathöfn var fyrst haldin árið 1995. Sjúkrahúsprestar og djákni Landspítalans sjá um athöfnina í samvinnu við starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma.

Söngur og undirleikur verður að þessu sinni í höndum Jóhanns Friðgeirs Valdimarssonar og Jónasar Þóris. Prestar verða sr. Ingileif Malmberg og sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson. Athöfnin er öllum opin. Eftir hana verður gengið að Minnisvarða um líf og að fósturreit í Fossvogskirkjugarði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×