Leikarabörn í Herranótt 26. febrúar 2010 06:00 Feta í fótspor foreldranna. Steiney Skúladóttir, Guðmundur Felixson og Eygló Hilmarsdóttir fara með hlutverk í uppsetningu Herranætur á LoveStar. Þau eru öll börn þjóðþekktra leikara. fréttablaðið/stefán
Herranótt, leikfélag Menntaskólans í Reykjavík, frumsýnir LoveStar í kvöld. Í leikhópnum eru þrír krakkar sem fengu leiklistarkennslu við morgunverðarborðið heima hjá sér. Börn þriggja þjóðþekktra leikara fara með hlutverk í uppsetningu leikfélags Menntaskólans í Reykjavík á verki Andra Snæs Magnasonar, LoveStar. Börnin eru þau Guðmundur Felixson, sonur Felix Bergssonar, Steiney Skúladóttir sem er dóttir leikkonunnar Halldóru Geirharðsdóttur og Eygló Hilmarsdóttir, dóttir Hilmars Jónssonar og leikkonunnar Sóleyjar Elíasdóttur. Þetta er í fyrsta sinn sem LoveStar er sett á svið og er leikstjóri verksins Bergur Þór Ingólfsson sem spann handritið að verkinu jafn óðum ásamt leikhópnum sjálfum. „Ég held að það megi alveg fullyrða að við séum öll með leikhúsbakteríuna í okkur. Ég sjálf elst upp í kringum leikhúsið og þekki það líf mjög vel og finnst það mjög skemmtilegt,“ segir Steiney. Þetta er í þriðja sinn sem hún stígur á svið með Herranótt auk þess sem hún hefur leikið í auglýsingum og öðru slíku. Guðmundur og Eygló hafa einnig reynslu af því að leika á sviði því þau hafa bæði staðið á sviði Þjóðleikhússins. Auk þess að fara með hlutverk í LoveStar sitja Steiney, Guðmundur og Eygló öll í stjórn Herranætur. Steiney segist spennt fyrir frumsýningunni í kvöld og segir æfingarferlið allt hafa gengið mjög vel fyrir sig. „Ætli stressið geri ekki vart við sig seinni partinn í dag. Það kemur alltaf smá fiðringur í mann þegar maður stígur á sviðið en svo ferð það um leið og maður byrjar að leika. Mér finnst mjög gaman að standa á sviðinu, enda pínu athyglissjúk. Ég held að maður verði að búa yfir smá athyglissýki ef maður ætlar að verða leikari,“ segir hún og hlær. LoveStar verður frumsýnt í Norðurpólnum klukkan 20.00 í kvöld. Miðapantanir fara fram í gegnum síma 695-4300. sara@frettabladid.is
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira