Empire velur verstu myndirnar 4. febrúar 2010 06:00 Batman & Robin hefur verið valin versta kvikmynd sögunnar af lesendum Empire. Battlefield Earth með John Travolta lenti í öðru sæti.
Lesendur kvikmyndatímaritsins Empire hafa valið verstu kvikmyndir Hollywood og á toppnum tróna góðkunningjar sambærilegra lista. Sú kvikmynd sem þykir allra verst er Batman & Robin með George Clooney í hlutverki Leðurblökumannsins og Chris O‘Donnell sem Robin. Einhverjir kunna jafnframt að muna eftir Umu Thurman sem Poison Ivy og Arnold Schwarzenegger í líki Mr. Freeze úr þessari mynd en hún eyðilagði annars ágætan Batman-kvikmyndaflokk sem Tim Burton hafði byrjað á með Michael Keaton í hlutverki Bruce Wayne. Í öðru sæti yfir verstu kvikmyndirnar er síðan Battlefield Earth með John Travolta en hún er byggð á handriti stofnanda Vísindakirkjunnar. Þessi útnefning ætti því ekki að koma neinum á óvart enda var myndin algjört bull frá upphafi til enda og gagnrýnendur hreinlega rifu hana í sig. Love Guru með Mike Meyers í aðalhlutverki fær síðan bronsið en þrátt fyrir að vera gamanmynd voru ákaflega fáir áhorfendur sem hlógu í bíósölum heimsins. Í fjórða sæti á lista Empire er síðan Raise the Titanic, alveg hrikalega dýr kvikmynd frá árinu 1980 með Jason Robards og Alec Guinness í aðalhlutverkum. Hún fær 3,9 í einkunn á imdb.com og höfundur bókarinnar sem myndin byggir á var svo vonsvikinn að hann seldi ekki kvikmyndaréttinn að neinni bók sinni næstu tuttugu árin. Í fimmta sætinu situr síðan vitleysismyndin Epic Movie en aðstandendur hennar, Jason Friedberg og Aaron Seltzer, eiga nokkrar á þessum lista, sem von er, enda eru Movie-myndirnar sorp, hvernig sem á það er litið.
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira