Gunnar leitar að Sollu Stirðu 4. febrúar 2010 06:15 Stelpur á aldrinum 18-28 ára eru hvattar til að mæta í áheyrnarprufur fyrir hlutverk Sollu stirðu hjá Latabæ. Fréttablaðið/Anton „
Það verða opnar prufur og þær fara fram laugardaginn 13. febrúar á Hilton Nordica-hóteli við Suðurlandsbraut. Hefjast stundvíslega klukkan tíu og fólk á að mæta tímanlega því við finnum fyrir miklum áhuga og búumst við miklum fjölda,“ segir Gunnar Helgason, leikstjóri Latabæjarskemmtunarinnar sem fram fer í Laugardalshöll hinn 27. mars. Stelpur á aldrinum 8-28 ára geta þá mætt og reynt fyrir sér í hlutverki hinnar skeleggu Sollu stirðu en sú sem verður fyrir valinu mun hafa í nógu að snúast því næg verkefni eru fram undan hjá Latabæ á næstunni. „Við viljum gefa öllum umsækjendum nægan tíma til að láta ljós sitt skína og þess vegna verða tvær dómnefndir; Magnús Scheving og Máni Svavarsson verða auk systranna Guðfinnu og Birnu Björnsdætra. Þá mun Margrét Eir verða sérstakt tóneyra,“ útskýrir Gunnar. Solla er vafalítið einhver þekktasta íslenska stelpan í heiminum í dag, fyrir utan kannski Björk, þótt ekki séu margir áhorfendur í útlöndum sem gera sér grein fyrir þjóðerni hennar. Svo skemmtilega vill til að sú sem lék Sollu áður, Linda Ásgeirsdóttir, er að leika undir stjórn Gunnars í öðru leikriti um þær Skoppu og Skrítlu. Gunnar vildi hvetja allar stúlkur á þessum aldri til að mæta því Latibær væri alltaf að leita eftir hæfileikafólki. „Okkur vantar alltaf dansara og það er alltaf gott að vera kominn á lista.“ Skráning hefst á vísir.is á mánudaginn í næstu viku en hægt verður að nálgast lögin hennar Sollu á Latibær.is og Bylgjan.is.- fgg
Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Fleiri fréttir Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Sjá meira