Sigurhátíð sama hvernig fer 4. febrúar 2010 06:00 Hvanndalsbræður og Rögnvaldur gáfaði, höfundur Gleði og glens. „
Við höldum sigurhátíð í Sjallanum á laugardagskvöldið sama hvernig fer,“ segir Valur Freyr Halldórsson, trommuleikari og söngvari Hvanndalsbræðra. Hljómsveitin flytur sem kunnugt er eitt laganna sex í úrslitum Söngvakeppninnar á laugardaginn. Það heitir Gleði og glens og er eina lagið í keppninni sem er sungið á íslensku. Hvanndalsbræður eru sigurvissir. „Við fengum blóðbragð í munninn þegar við komumst í úrslitin. Við erum því ekkert með í þessu til að tapa,“ segir Valur. „Þetta er búið að vera svo rosalegt „plögg“ fyrir okkur að við verðum bara að fara alla leið. Það væri ekki ónýtt að vinna Eurovision. Röggi myndi reyndar detta niður dauður því honum finnst þetta svo fíflalegt. Okkur finnst það svo sem líka. Við erum komnir með stimpilinn á okkur og margir sem hafa fílað okkur lengi æla á okkur núna. Á móti eru krakkar og húsmæður farin að fíla okkur.“ Hljómsveitin hefur undirbúið sig af kostgæfni fyrir stóru stundina. „Við höfum farið í „body jam“-tíma hérna niðri í Átaki. Það eru svona konudanstímar. Á eftir höfum við farið í spa og fengið alls konar krem. Við breytum atriðinu lítið, stillum hljómsveitinni reyndar aðeins öðruvísi upp. Eina breytingin sem fólk mun sjá er að við verðum með ný bindi.“ Nú ganga ásakanir um að lögin sem Jógvan og Hera Björk syngja séu stolin og Hvanndalsbræður hafa lent í því sama. „Fréttablaðið Feykir.is í Skagafirði vill meina að lagið sé tvístolið. Við sendum það inn í óþökk Rögnvaldar og þeir slá því þannig upp að við höfum stolið því úr náttborðsskúffunni hans. Hann á svo að hafa stolið því frá sjálfum sér því lagið er svo líkt öðrum lögum sem hann hefur samið. Við erum pollrólegir yfir þessu. Eru ekki öll lög meira og minna stolin?“ Hvanndalsbræður fljúga norður strax að lokinni keppni. „Við förum í einkaþotu í boði Glitnis og Milestone og svo tekur bæjarstjórinn á móti okkur á flugvellinum,“ segir Valur.- drg
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira